|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 34531
|
10.12.2008 12:57:27 / thorgunnan
Jááá, blogga víst ég þarf... og ekki er ég frá því að þetta verði mitt síðasta blogg frá í Ástralíu *snökt*
Ég á aðeins tvo ástralska daga eftir. Er það bara ég eða er þetta ár búið að líða aðeins of hratt. Trúi þessu bara ekki. Fór í gegnum allar myndinar mínar í gær [þar sem ég er búin að lofa svo mörgum myndum á geisladiskum] og þá helltust yfir mann svo margar minningar frá árinu... ...sem hefur án efa, verið eitt áhugaverðasta, ef ekki besta ár lífs míns.
Allar mínar þakkir og ást fara rakleiðis til mömmu og pabba ^^ fyrir að hafa hjálpað mér að gera skiptinema drauminn, og svo mikið meira, að veruleika! og auðvitað fyrir að þola öll "elska ykkur svo mikið.... give me pening?" símtölin.
Þrátt fyrir að það verði rosalega erfitt að fara frá Ástralíu.. þá verð ég nú að segja að manni er nú farið að hlakka til að fara heim, reyndar ekkert svaðalegur spenningur yfir ferðalaginu, ehe, en heimkomunni ^^ ... verður sweet að sjá ykkur öll aftur, en ég vara ykkur við...Þórgunnur sem þið þekktuð áður fyrr, er örðin tvöföld [æh þið vitið, fita sig upp fyrir kreppuna, svo ef það er heitt úti þá er besta kælingin íspinni] þannig að ekki láta ykkur bregða þegar þið sjáið mig aftur.. gefið mér bara knús og klípið í kinnarnar, haha.
Anyway. Hverjir skildu nú vera komnir í jólaskapið? ja eitthvað er ég nú aðreyna, en það gengur ósköp lítið í blessuðum hitanum. Bærinn er reyndar fullur af blikkandi ljósaseríum, þessir ástralar eru engir sérstakir smekk menn þegar það kemur að jólaljósum, og svo í öllum helstu verslunargötum og búðum eru auðvitað jólalögin í botni... "let is snow, let is snow, let is snow", sem er auðvitað rosa gáfulegt jólalag í 35° hita. Fór svo á jólasamveru í skólanum sem ég er að 'vinna' í. Allir úti, kafnandi undan jólasveinahúfum, drekkandi bjór [haha já það er eitthvað sem á eftir að sakna, Ástralir eru svo afslappaðir yfir öllu].. og svo voru kórar og leikrit, voða basic, en krúttlegt. Og og og svo var þarna jólasveinninn, í stutterma bol og stuttbuxum, borðandi ís, æði.


Nú man ég ekker hvað ég hef verið að gera. Jú, ég hélt kveðjupartyið fyrir fólkið 'á borðinu'.. félagar úr skólanum semsagt. Það var bara djammað og djúsað, sundlaugar party sjáiði til. Fékk nokkrar gjafir, nice, gallin var að taskan var full, sem þýddi einfaldlega að ég þurfti að gefa fleiri gömul föt í burtu. En já, það var gaman að sjá fólkið aftur, endlaust étið af pizzu, snarli og auðvitað TimTams. Hlátrasköll og spjall langt fram á nótt.

Etir örlítin svefn lögðum við fjölskyldan af stað til Swan Hill, í hádegismat með "ömmu, afa og frændfólki". Eftir ljómandi mat, fórum við og skoðuðum gamlan bæ, sem hefur verið uppgerður. Þar fékk ég alveg svaðalega svala húfu.. stelpurnar segja að ég lít út eins og gamall kall með hana, en hún er svöl. Svo fékk ég alveg þræl magnað veski í kveðjugjöf. Ég fékk svo far til Bendigo, en ég lofaðist til að hitta Carol. Hún var í svona líka þvílíku klandri, snátan búin að vera að versla föt síðan að hún kom.. og hún þyrfti ábyggilega þrjár aðrar töskur. En eftir nokkur tár fórum við í gegnum allt dótið, og eftir að hafa tekið allan 'óþarfa' í burtu, vorum við góðar og hún ætlar svo bara að gefa vinkvendum sínum fötin.



Þegar heim var aftur komið, tókvið ; pakka, kveðja, vinna, plana, .. mikið að gerast og miklu meira af einhverju sem ég þarf að muna eftir og klára.
Annars vil ég bara enn og aftur segja, að þetta hefur verið yndislegur tími, ég elska Ástralíu og mun án efa ferðast þangað aftur og aftur og aftur ef ég get!
Svo er ég ekki frá því ef er ekki öruggari, þroskaðri... reyndar ennþá jafn ákveðin, og alltaf jafn úrill ^^, [sleppið ekkert við það]. Verið lærdóms rík dvöl að minnsta kosti! það má nú segja það.
Væntanlega mun ég rita niður örfá orð í Hong Kong eða London eða á klakanum, en það kemur bara í ljós og svo sé ég til hversu mikið af myndum ég set hingað inn áður en ég fer [áhugasamir geta litið við og skoðað nýjar myndir bráðlega] og já nú ég fara að sofa já.
Sjáumst heil og sæl í kreppunni á klakanum! Takk fyrir.
-Þórgunnur Þórsdóttir.
»
25.11.2008 12:25:41 / thorgunnan
"I like the word 'indolence' It makes my laziness seem classy"
Komiði nú öll sömul blessuð og sæl. Þetta er ég; Þórgunnur. Ég á töff 'hippa' peysu.
Sitthvað hefur á daga mína drifið, en ekki er ég viss um hvort minnið sé uppá sitt besta. Sjáum til.
Prófin eru búin og ég þarf ekki að stíga fæti mínum inná skólalóðina aftur, þótt væntanlega eigi ég eftir að gera það. Nú þar sem skólagöngu minni í Ástralíu er nú opinberlega lokið, tók ég uppá því að fara að "vinna" á skrifsofu i skólanum sem selpurnar fara í. Sveimér þá ef verkefnin sem ég fæ þar eru ekki með þeim leiðinlegustu sem hægt er að fá. Skal sanna það seinna með myndbandi, ef ég get. Annarrs er bara fínt að geta hjálpað til... svo hugulsöm ha.
Núna er svo aldeilis farið að stittast í heimkomuna. Búin að kveðja mikið af góðu fólki, sérstaklega haug af skiptinemum, en flestir eru lagðir af stað í heimferðalagið sitt.
Nú ástæðan fyrir því að ég blogga núna, er vegna afs 'heimferðar' fundinum sem ég fór á. Ég lagði semsagt af stað frá rútubílstöðinni síðastliðinn föstudag, með fríðu föruneyti; Jacobo [Italy] og Jodie [Australia, hún er að fara til Japan].
 .Jacopo.
Förinni var haldið í rigninguna í Adelaide og þaðan á sveitbæjartjaldstæðasamkomuhúsi að nafni Pendleton. Í Adeilaide þurftum við að bíða í fjóra klukkutíma eftir afgangnum af afs liðinu, þannig að við tókum pínu rölt í bænum, sáum svona líka huges jólaskraut og jólatré, nokkuð skondið því líður ekki baun í bala eins og jólin séu að koma, ekki hægt í hitanum.
Eftir að góða göngu röltum við aftur að rútustöðinni þar sem hópur af skiptinemum var saman kominn í áframhaldandi rútuferð til Pendleton. Sú ferð var nú aldeilis skondin skal ég segja ykkur, en ferðafélaginn minn í rútunni var eitthvað verulega rugluð í kollinum, haha, var bara eitthvað að sína mér video af bílslysum, tala um þegar hún sigaði löggunni á kærastann sinn og ég veit ekki hvað og hvað... hefur allavega verið gott hlátursefni síðan þá.
Þegar við komum loksins á áfangastað, hittum við afganginn af liðinu, leiðtogar töluðu eitthvað við okkur og svo já svefn.
Vaknaði við alveg svona líka yndislegt lag frá söngleiknum Hairspray, 'Good morning Voldemort'... ullabjakk. Engar vekjaraklukkur hér, bara skemmtileg hress lög í hátalarakerfinu.. einmitt það sem ég þarf svona eldsnemma á morgnanna. ehe. Allavega, eftir morgunmat fórum við í túr í gegnum sveitina, gáfum kindum, vísundum [buffaloes] emúum og dádýrum að borða

Svo byrjaði gamanið... leiiiikir. Meira ullabjakk =P haha. nei nei algjör óþarfi samt, er orðin svo leið á svona afs leikjum til að rabba um hitt og þetta. Svo var borðað [borðuðum sex sinnum yfir daginn]. Svo var byrjað að tala um hitt og þetta í sambandi við heimkomu, hvað við getum búist við og hvað við eigum að gera og ekki geri.. og blah. Ef að nokkrir vinir og fjölskylda er ennþá til staðar þegar ég kem heim verð ég bara rosa glöð (= Já svo var talað um hvernig á að kveðja alla hérna í Ástralíu og svo... fleiri leiiikir. Jíha. Nú svo var hádegismatur og eftirréttur, og stuttu eftir það tókum við hópmynd.



já dagurinn hvarf eiginlega bara, bara endalausir leikir, spjall og tal.. svo fórum við reyndar í nokkra göngutúra, og trivia night! yay. Nú þegar að háttatíma kom, enduði allar stelpurnar í hrúgu á gólfinu að segja draugasögur... baaahaahaha það var fyndið, ég auðvitað datt ekki í hug að taka þátt, og naut heimskunnar úr fjarlægð, einstöku sinnum skaut ég inn svona leiðinlegum kommentum, eins og í SÖNNU sögunni þegar taxa bílstjórinn var að keyra í neðanjarðar göngum og sá konu alveg hvíta í framan og hárlitur augnlitur og föt alltsaman hvítt, og hún var rennandi blaut, og hann stoppaði bílinn og bauð henni far... og svo dó hann... ég meina hvernig í ósköpunum átti hann að hafa getað sagt frá sögunni ef hann dó. daaa. vá hvað ég er skemmtileg stundum, múhaha. En jújú það var gaman að horfa á þær öskra úr sér raddböndin.
Ekki vaknaði maður við Hairspray, en diskóið var alveg að gera sig. Fékk mér morgunmat, fór svo með öllum í völundarhúsið sem var á svæðinu. Það var nú bara askoti fínt. Eftir það gerðum við nú bara það sem við vildum, sem var rosa nice. Fórum í kayaka ferð, tókum sundsprett, sungum Pókemon lagið á mörgum tungumálum [erum svo svöl], en það var án efa lag ferðarinnar... sweet.


Við enduðum svo á brennu og sykurpúðum.
Já, næsti dagur fóru allir heim til sín á ný. Kynntist alveg haug af nýju æðislegu fólki, og svo var auðvitað ennþá meira gaman að hitta Hannes, Taneli og Freddie á ný frá Safari ferðinni.


Jájá, svo um leið og maður kom til baka fór maður að vinna. Annars hef ég ekkert mikið meira að segja ykkur. Fer reyndar á forsýningu á Australia myndinni á morgun... mega stuð. Renn ábyggilega yfir bloggið á morgun og breyti eða bæti við, er svo rosalega þreytt þessa stundina =P
Sakna ykkar <3 - Þórgunnur
»
12.11.2008 09:51:09 / thorgunnan
jæja gott fólk, í dag tók ég nokkrar myndir af húsinu mínu, þannig að þið sem ekki hafið fengið túr í gegnum húsið [skype], ættuð að getað rínt í þessar myndir.
Og já afsakið stærð
 já, þetta er semsagt forstofan. það skondna er að þú ferð ekkert úr skónum þar. Herbergið þitt er semsagt þín eigin "forstofa" þar sem þú geymir allar yfirhafnir og skó
 Eldhúsið, ábyggilega uppáhalds staðurinn minn í húsinu .ehe.
 Vínkjallarinn
 ah, gangurinn frá herberginu mínu
 Herbergið hennar Juliu
 og herbergið hjá hinum snátunum
 "Betri setustofan" þarna er arinneldurinn, píanóið og svoleiðis
 Komin upp stigan.. litla ræktin og stjörnukíkirinn
 hjónaherbergið... útfrá því er svo stórt baðherbergi, fataherbergi og svo skrifstofa
 komin aftur niður. Þetta er "betri borðstofan"
 Stofan
 Leiðin inná baðherbergi mitt [og stelpnanna] og klósettið
 betri mynd af baðherberginu
 Þvottahúsið
 Og svo er hérna úti borðstofan
já ekki fleiri myndir í bili, kem kannski með video seinna af 'umhverfninu', hljómar það ekki bara vel? hmm
Annars hefur ósköp lítið gerst síðan ég bloggaði seinast. Tók matarfræðiprófið í gær, sem var nú bara þó nokkuð erfitt, en ég er ekkert að falla. Svo tek ég seinsta prófið á föstudaginn, og svo verður bara djammað þangað til að ég kem heim ehe
Kem með eitthvað seinna fyrir ykkur Þangað til næst - Þórgunnur Aussie
»
09.11.2008 11:15:44 / thorgunnan
 <3
Jájá hér er ég, tilbúin í næstu skriftir. Ekki eru fréttirnar margar, en ég ætti að geta tínt sitthvað hingað inn.
Heimferðarplönin eru komin í hús ásamt flugmiðum. Ég á alveg skuggalega lítinn tíma eftir hérna í Oz, en tilhlökkunin um að koma heim og hitta liðið fer ört stækkandi. Ef allt gengur samkvæmt áætlun, þá ætti ég að vera lennt á klakanum klukkan 4, þann 14.des eftir 'skemmtilega' langa ferð.
Hmmm. Fyrir utan tvö próf, þá er ég búin í skólanum! það er auðvitað bara nice. Fæ mánaðar frí áður en ég kem heim. Eitthvað verður ferðast, er að pæla í að hjálpa til á skrifstofu í skólanum sem stelpurnar fara í, og svo getur maður aldeilis notað tímann í að dunda sér í úrklippubóku, henda myndum inná netið og búa til nokkur video.
Seinasta helgi. Lærdómur og meiri lærdómur. Fór í afmælisparty til Belu minnar sem er nú orðin loksins orðin 18 og getur [loksins] farið að djamma í heitustu klúbbum bæjarins. Fór svo út að borða á Pizza Cafe og á einhverjum fjólubláum indverskum stað. Á þriðjudaginn var svo einhver skondnasti frídagur sem ég hef upplifað. Allir í Victora fá frídag... vegna þriggja mínútna kappreiða. Já áhugavert var það, liggur við að allir í Vic leggja að minnsta kosti einhvern pening undir.. og svo er bara að vona að hesturinn þinn vinni, eða lendi ofarlega í röðinni að minnsta kosti.
Ég byrjaði svo aftur á flickr, eftir þó nokkuð langa pásu. www.flickr.com/thorgunnan

Á fimmtudaginn kom svo hin finnska Carol í heimsókn til mín, en ef einhver vissi það ekki, þá hitti ég hana í safari ferðinnni, og svo fór ég í heimsókn til hennar, fyrir ekki svo löngu, en við ferðuðumst saman til Melbourne. Áður em við vissum af vorum við búnar að koma okkur vel fyrir inná kaffihúsi og auðvitað mikið spjall i gangi. Við fórum svo og röltum um bæinn, hún fór í pínu verslunarferð og svo var bara farið heim.
Ehe. föstudagurinn var áhugaverður skal ég segja ykkur. Í fyrsta skipti síðan ég kom hingað, rigndi, en það rigndi næstum því í heilan dag [hef bara séð svona 10 mínútna gusur] Og já. Tveir skiptinemar, ekki langt í heimkomu... við klæddum okkur í einhverja hallærislegustu gulu regnkápur, og skelltum okkur í göngutúr, og auðvitað á kaffihús. Ætli við höfum ekki vakið örlitla athygli ^^ mátti nú alveg glitta í þó nokkur bros á vegfarendum. Nú eftir göngutúr í mallinu, og eftir að hafa skemmt sér við að hoppa í pollum á leiðinni heim [aaa það var nú meira æðið] Fórum við útí eftirminnilega myndatöku... margar skemmtilegar myndi skal ég segja ykkur, ég edaði meira að segja á því að henda mér útí ánna, í pínu sundsprett :'D Læt ykkur vita þegar þær byrtast á vefnum. Annars skal ég henda nokkrum vel völdnum myndum hingað inn núna.



ehe, já, stuð. Á laugardaginn fórum við í ræktina, askoti magnaðar. Á leiðinni heim rölti ég enn og aftur fram hjá 'skate park'-inu en í þetta skipti sá ég nú nokkra kunningja og eftir dágott sjall við liðið örkuðum ég og Carol heim... og svo var förinni aftur haldið til 'skate park'-sins en í þetta skipti með myndavélina. Eftir að hafa séð fjöldamörg trikk fórum við heim, en við vorum pössunarpíur kvöldsins. Þar horfðum við á fjöldamargar myndir, átum yfir okkur, og svo um 3 leitið.. svefn.


Í dag vöknuðum við snemma, og eftir morgunmat var farið í bátsferð. Það er auðvitað alltaf jafn skemmtilegt, og enduðum við auðvitað á því að fara að "hné surfa".

Carol fór svo heim um hádegið. Og það fyrsta sem ég gerði þegar hún fór, ég fór að sofa... mikið rosalega getur þess manneskja talað á nóttunum, haha. En já. þetta ætti að vera nóg í bili... hendi inn myndum í þessari viku. Lofa.
Bestustu kveðjur - Þórgunnur
»
28.10.2008 10:14:36 / thorgunnan
Jæja góðir hálsar. Þá er nú komið að enn einum skriftum frá mér. En í þetta skipti verða þau ekkert löng. Nú það fyrsta og það helsta sem ég vil segja ykkur frá.. er auðvitað sú stórkostlega frétt að ég fór loksins á veitingastaðinn Sefano's [mjög virtur staður hérna í Ástralíu], en það vr jú partur af afmælisgjöfinni frá fjölskyldunni.

Nú ég gæti svosem eitt miklum tíma í að tala um þessa fimm rétta upplifun, en þar sem ekki myndi það þykja mjög áhugavert lesefni, ætla ég að henda inn matseðlinum í staðinn. [Stefano's er veitingastaður þar sem þú velur ekki hvað þú færð, heldur er bara eldað eftir matseðli kvöldsins og volah]
Antipasti Parma Prosciutto, Local Yabbies Red Capsicum, Vitello Tonnato
Harvey Bay Half Shell Scallops with Bread Gratin
Hand Made Egg Yolk Pappardelle with Chicken Liver
Eye Filltet of Beef with Dukkah Potato Bake & Greens
Vanilla Panna Cotta Orange Caramel
jááá vááá... ef eitthvað var æði þá var það þetta. Þvílík unun.. jamm. Aldeilis verið að dekra við bragðlaukana skal ég segja ykkur.
Nú já, við skiptinemarnir ákváðum nú að skella okkur í minigolf og útað borða. Það var nú bara gaman, eins og alltaf þegar við hittumst. Mikið af yndislegum hálfvitum, haha.
 .rosalega myndó í minigolfi.
.mhm. Skólinn er svo alltaf á fullu jújú, þessar tvær seinustu vikur eiga eftir að vera erfiðar og langar, en ég þrauka ég þrauka. En obbobobb hvað haldiði að Þórgunnur hafi nú tekið uppá að gera? ja sjáiði til, þar sem maður á nú ekkert mikið eftir, getur maður nú aldeilis tekið uppá hinum furðulegust hlutum. Ég að þessu sinni kom fram sem model í tiskusýningu *hökursíganiðurágólf* jújú mikið rétt. Það var nú ekki dream come true fyrir mig, en ég gerði þetta með öllum mögulegum snúningum, og pósum... og ætla ég aaaldrei aftur að gera eitthvað þvíumlíkt... en ég gerði þetta engu að síðu, enda til í flest. En annars var þessi sýning ekkert smá flott, ég meina þvííílikir kjólar og outfit hjá sumum, bara eins og klippt útúr hátísku tímariti!!! og auðvitað voru þarna model í stíl.. 'tveggja metra' grannvaxnar stúlkur með svaka greiðslur og stífmálaða.
 .sko alveg stuð hjá mér.
 .dæmi um ekta model.
.aha. Þá held ég að ég sé bara orðin góð, ekkert mikið meira hægt að tala um.. en ekki örvænta því næstu vikur eru allar með einhver plön, þannig að ég ætti að geta komið með reglulegt update hérna (= Kveð þá að sinni - Þórgunnur Þórsdóttir
»
24.10.2008 11:04:40 / thorgunnan
»
21.10.2008 12:14:30 / thorgunnan
Heirru.. ég verð að blogga. Hvað hef ég verið að bralla seinustu daga? hmmm. Skólinn hefur tekið óþarflega stóran part af seinustu dögum, en ekki nenni ég að standa í kvörtunum þar sem aðeins þrjár vikur eru eftir að skólanum, en þá verður maður barasta kominn í frí alveg þangað til að heimkomu kemur. Mér hefur loksins tekist að klára að taka myndirnar fyrir næsta ljósmyndaverkefnið mitt, sláin mín verður í tímariti skólans, ég er að dunda mér við að sauma lítið vesti úr afgöngum sem ég á, í ensku og matarfræði er ég a drukkna í glósum og verkefnum.. og svo hef ég lokið kvikmyndafræðslunni af þarf þar af leiðandi ekki að mæta í tíma lengur. Til gamans má geta að ég gleimdi alltaf að klára skóla video-ið mitt þannig að þið verðið bara að njóta þess sem ég hef gert so far. Jú svo er maður orðinn fastagestur á Muso, enda orðin allramanna mate ;P. Fór þó sérstaklega núna til að horfa á XIV, sem voru góðir að vanda. Tók jú auðvitað myndir fyrir þá líka.  Svooo.. fór maður auðvitað á The Mildura Show, en bærinn setur upp þó nokkuð stórt tívolí, með dúndrandi mjúsík, skemmtilegum sölubásum og keppnum, eins og stærsta grasgerið, flottasta kakan og fleira og fleira. Meira stuðið! rúsa gaman.  .part of my mates.  .verið að horfa á flugeldasýninguna. Jááá... eftir þetta kvöld ákvað maður bara að taka morgundaginn í rólegheitunum ;] Vaknaði við ilminn af egg og beikoni, en morgunmaturinn var borðaður úti í morgunsólinni.. og svo eyddi ég deginum í lærdóm, spjallaði svo við yndislegustu Ingu og Palla <3 á skype og svo var eins og einhver hafi kveikt á ofur hitara en hitamælirinn sýndi 38°, sem þýddi einfaldega að ég varð að kæla mig í lauginni, sem varð að áfanga stað kvöldsins.  .ekki amalegt skal ég segja ykkur. Núna er svo loksins runnin upp sú stund að ég fer að borða á Stefano's ^^ ómæ get varla beðið. Erfitt að vera svona mikill matarunandi ;P Nú svo er líka byrjað að plana kveðjupartyin mín :[ sem mér finnst nú bara vera rosa sorglegt, því ég vil nú ekkert fara að hugsa um það strax að ég sé að fara. En jú verð með eitt sundlaugarparty fyrir skólaplebbana mína ^^ í lok Nóvember og svo verður Steph mín með eitt heljar party fyrir Þórgunni sína sjötta des, og þann 12. des verður lokakveðjupartyið en það er meira svona fjölskyldan og AFS fólk.. þannig að gaman gaman, bara meira til að hlakka til... þótt að þetta sé ekkert rosa tilhlökkunarefni, eða jú, eða nei... æh vá flókið sko. Annars bara komið nóg í bili held ég barasta. Kem með meira seinna ;] -Þórgunnur Þórsdóttir
»
09.10.2008 12:47:57 / thorgunnan
Þá er nú kominn tími til að segja ykkur frá seinasta ferðalaginu sem ég fór í. Eftir þó mikklar pælingar og plön, komum við okkur saman um hvert förinni skyldi haldið. Byrjuðum við á að keyra til Hay. Það skal ég segja ykkur er lítill bær, sem er einhverstaðar í miðju flatlendinu og aldrei hef ég nú séð jafn mikla 'fletni' eða hvernig sem maður orðar það, hvorki hólar né tré að sjá. Má þó sjá nokkrar kindur á röltinu í rykstormunum japplandi á saltrunnum. Einhverja hlutanna vegna er nefnilega mikil sauðfjárbúskapur á þessu svæði. Við fórum semsagt á einhvert kinda safn, sem gekk að mestu leiti útá það hvernig á að ríja kindur, en kindur á þessu svæði eru ræktaðar til þess að fá ull. Eftir stutt stopp þar, keyrðum við alla leið til Parks, sem er annar lítill bær. Landslagið í kringum þann bæ, hefði nú hentað kindum betur, en allstaðar mátti sjá græna, gula og jafnvel fjólubláa akra, hóla og fjöll. Í þeim bæ sváfum við á frekar skondnum stað. Eftir að hafa risið snemma úr rekkju, fórum við að 'disknum' eða the dish. Það er einhver rosa stór gervihnattadiskur sem átti einhvern part í því þegar Bandaríkjamenn lentu á tunglinu. Nú helsta ástæðan yfir "heimsókninni" var nú að vel þekkt dvd mynd hérna í Ástralíu er um þennan tiltekna disk. Algjörlega ekta Ástralskur húmor í gangi þar... fínasta mynd.  Já þetta er nokkuð gulur akur  Brot af disknum Eftir það brunuðum við að 'bláu fjöllunum, eða fjallgörðunum. Það var algjört æði... að minnsta kosti ekkert smá flott útsýni! Þar sáum við meðal annars eitt af 'iconum' ástralíu; The three sisters, sem var frábært. Á útsýnispallinum var ég líka svo heppin að hitta mann sem tók uppá því að segja mér 'þjóðsögur' frá svæðinu, var svo með einhverjar jurtir sem ég fékk að lykta, og hann eitthvað að segja mér hvernig frumbyggjar notuðu þessar plöntur í matargerð og svo fleira og fleira... skemmtilegasta var að hann minnti mig örlítið á hann Nonna afa sem jú alltaf getur dregið upp yndislegar sögur (=  Three Siters [í bláfjöllunum]  ég og kæró haha Heyrðu svo keyrðum við bara meira og meira, þangað til við komum að næsta svefnstað. Það var ennog aftur í einhverjum litlum bæ sem enginn veit um. Íbúðin var svo bara nokkuð góð... en ég á nú eina sögu frá þeim stað. Ég skelti mér í sturtu svona áður en við færum út að borða. Leið og ég steig útúr sturtunni rek ég augun í einhverja kónguló. Án þess að láta hana eitthvað angra mig, klæddi ég mig í rólegheitunum, þurkkaði hárið og gerði mig bara klára, labbaði fram og eitthvað sagði að það væri kónguló inná baði, bara svona til að láta fólk vita. Selwyn kom þá með mér og eftir að hafa skoðað hana eitthvað, þá bara já... þessi er veleitruð, getur þó ekki drepið þig, en gerir þig vel veika o.O ég bara eitthvað 'oh okay' á meðan hann drepur hana. Eftir mat á barnum, leigði ég mér mynd sem ég horfði á meðan að allir fóru í háttinn. Um eittleitið ákveð ég svo að fara að sofa. Fer inníherbergi, sem var frekar kalt og uppgötva ég að einhver gleymdi að loka glugganum mínum, sem var beint fyrir ofan rúmið mitt [voru tvær kojur.. ég svaf í neðri rúminu og það er svona endilangur gluggi fyrir ofan mig. Nú já... um leið og ég dreg gardínuna frá til að loka glugganum... dettur líka svona myndaleg kónguló á koddann minn... og haldiði ekki að þetta hafi bara verið alveg eins kónguló eins og ég sá inná baði? haha ég bara stóð þarna og glápti.. hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera. Jú þarna lá skór... og já hún taldist ekki lengur meðal lifandi kóngulóa... en svo varð ég nú nokkuð óróleg.. hristi gardínuna og útúr duttu þrjár í viðbót!! og ég ætlaði að deyja... gat ekker farið að vekja fólkið, og ég ekki einu sinni viss um hvort ég vildi sofa þarna. En æh, náði nú að drepa tvær, ein slapp. Lokaði glugganum, vafði laki utanum mig [haha vissi ekkert hvað ég ætti að gera... og fór svo að sofa. Nú eftir að hafa dreymt kóngulær, héldum við förinni áfram og næsta stopp voru elstu hellar í heimi... eitthvað um 450.000 milljón ára en risaeðlur voru hérna fyrir 65.000 miljón árum. Allavega...við fórum i leiðsögu túr um Lucas hellinn [sem er vinsælasti hellirinn á svæðinu/ af 350] og sveimér þá ef það var ekki bara awesome! alveg kemst á topp 3 listann minn yfir því hvað hefur verið best að sjá. Mæli með lítilli heimsókn ef einhver er á leiðinni. Gæti komið méð ótal lísingar um hvað við sáum og meira og feira... en í staðinn ætla ég bara að setja inn nokkrar myndir.    Þessir hellar voru semsagt algjört æði!! Eftir skoðun, skelttum við okkur til Canberra, höfuðborg Ástralíu þar sem við eyddum fjórum dögum í einfaldlega veitingstaði, söfn og svo skoðuðum við auvitað gamla og nýja alþingishúsið. Ekki amalegt sko. Gæti vel farið útí einhver smáatriði, en ég er bara alltof þreytt, þyrfti helst að fara að sofa, en þarf að klára slatta af heimalærdómi [ehe.. sem er ekki að fara að ganga] Allavega... skal reyna að vera dugleg við að henda inn myndum við fyrsta tækifæri. Svo skal ég blogga bráðlega aftur... kannski barasa með myndir af húsinu eða eitthvað í þá áttina. Góða nótt. - TimTam
»
26.09.2008 11:49:47 / thorgunnan
Ákvað að henda einhverju stuttu hingað inn áður en ég fer í vikurferðalagið með familyunni. Seinustu daga hef ég verið að njóta þess að vera í fríi frá skólanum. Hef að mestu leiti legið í leti, enda með eitthvert leiðindar kvef, en svo hef ég jú eitthvað skotist í ræktina, því ég ætla nú að reyna að ná einhverjum fitukeppum af mér svo ég þurfi nú ekki að ganga með nafnspjald þegar ég kem heim. Heyrðu svo hefur maður verið að læra, fullt af einhverjum litlum verkenum sem ég þarf að gera, og svo aukalega stærri verkefni sem ég náði ekki að gera áður en fríið byrjaði. Svo er nú aldeilis farið að hitna, en venjulegur hiti þessa stundina er um 30° ... gengur ekki, sumarið ekki einu sinni komið.. en þá fer nú í alvöru að hitna í kolunum og meira segja ástralar fara að kvarta yfir hita, og hvað ef maður fer nú aðeins að venjast hitanum? ?... þá fer maður beint heim í kuldan. Ég verð ábyggilega hrikaleg kuldsræfa alltíeinu o.O hehe Heyrðu jú, ég kláraði svo 'kápusjalið' mitt, veit ekki hvort ég eigi eitthvað eftir að nota það, sjáum til. Annars bara sko mína...því ég bara í gúddí yfir því að hafa loksins getað gert eitthvað að viti fyrir framan saumavél, þótt ekki flókið sé Set inn myndir fyrir ykkur....   Hvað ætli ég geti sagt ykkur meira.... - Ég er búin að fylla heila tösku af einhverjum fötum, böngsum, koddum ásamt fleiru sem fer í sendingu bráðum heim. Áttiði mig nefnilega á því að það væri ekki möguleiki að koma öllu dótinu mínu fyrir í töskunum sem ég tók út. Og vá það var erfitt, fyrsta lagi af því að ég áttiði mig á því að það er ekki svolangt þangað til að ég kem heim [færri en 80 daga] og mig langaði ekkert að pakka.. og svo er ábyggilega eitthvað þarna ofaní sem mig langar alltieinu rosa mikið að nota ^^ hehe Tók myndir af herberginu áður en ég pakkaði.. hendi þeim inn  hérna getiði séð, uppáhalds koddann minn [svarti loðni] og svo er þarna rúmteppið og koddaverið sem Rebecca saumaði fyrir mig í afmælisgjöf ^^ [horfið ofaní tösku]  Allt dótið þarna í hillunum er svo líka horfið ofan í tösku =P [en auðvitað er mér búið að takast að setja eitthvað annað í staðinn] - Ég er fór í lengsta hádegismatarboðið mitt hérna í ástralíu, en Rob og Anette buðu okkur yfir til þeirra... klukkan 12 voru galdraðir út plattar með fuuullt af ostum, hráskinkum, salami, olívum, gratíneruðum sveppum og já bara nefndu það. Svo fengum við uppáhalds pastað mitt [sem hún Anette býr til] í forrétt, og svo fengum við æðislegan tveggja rétta aðalrétt, og pavlou í eftir-rétt... og þá var klukkan um 3:30 þannig að við fórum út og settumst þar niður með kaffibolla og ábyggilega tíu gerðir af góðgæti.... jamminamm [svo á ég að vera í átaki, gengur ekki að eiga svona matarvini]  Anette að útbúa fræga pastarettinn sinn - Ég er svo komin með nýja tímabundna fjölksyldumeðlimi sem ég er svo happy með! =D algjört æði... nú er bara að bíða eftir filmunum, og svo getur maður grallast eitthvað eftir skóla í myrkvakompunni þar.  - Fór svo í kveðjuparty hjá Andreu, sem er að fara heim á sunnudaginn, greyið langar ekkert að fara... en hún er samt spennt yfir að hitta fjölksylduna sína aftur. Jájá, tók engar myndir þar, nema eina af venjulega af himninum þegar við vorum að keyra heim  hehe bara til að setja myndir hingað inn Þá held ég nú sveimér á að ég hafi ekki meira að segja í bili. Allar myndirnar mínar eru jú up to date, þannig að áhugasamir meiga endilega renna í gegnum þær. Skelli svo inn bloggi og fleiri myndumþegar ég kem heim úr ferðalaginu mínu ^^ Svo ætla ég ég nú að drífa mig í því að taka myndir af húsinu og nágrenni og henda hérna inn... gengur barasta ekki að ég sé ekki löngu búin að drífa mig í því Byrja þá á því að inn myndina af "reiða bónus svíninu" [haha eða það var það fyrsta sem ég mér datt í hug] sem ég sé alltaf á reglulegu rölti mínu um bæinn  ehe Þangað til næst.
»
18.09.2008 12:33:44 / thorgunnan
Já núna er nú aldeilis byrjað að hitna í Oz, enda sumarið á næsta leiti. Ég er farin að finna kunnulega lykt af appelsínunum sem vaxa hérna allt í kring [vá, það er ekkert betra en að næla sér í nokkrar nýjar appelsínur af trjánum og borða þær ^^ ], lyktina af sólarvörn og svo að ógleymdu snarki í grillinu. Alveg hreint fínasta vor, 20° svona yfirþað heila, vel þolanlegt... annað en þegar það fer að fara yfir 40°, þá má ég nú fara að kvarta. Eins og ég áður sagði, fór ég í heimsókn til hennar Carol minnar um helgina, eða Fanni Nurminen eins og hún kallast nú í heimalandi sínu [Finnland]. Á Fimmtudaginn vaknaði ég semsagt klár í slaginn... labbaði útá lestar/rútu stöð og korter seinna var maður enn og aftur í einhverri rútu á leðinni í enn eitt ferðalagið. Sem betur fer voru sætisfélagarnir mínir ekki af verri endanum, þrír bakbokaferðalangar leitandi af vinnu, til að getað ferðast meira. Tveir þeirra voru frá Skotlandi [haha það má vel vera að ég sé kominn með einhvern skrítinn hreim.. en hinn skoski hreimur toppar hann] og svo var einn frá Þýskalandi. Jájá tíminn flaug semsagt í rútunni, enda töluðum við allan tímann.. og vá hvað við gátum hlegið mikið. Þegar við runnum í hlað í Swan Hill hopuðum við uppí lest og þar var spjallinu haldið áfram og tónlistin í tölvunum spiluð og svo fékk maður að sjá allskonar myndir :'] gaman gaman. Brátt blasti lestarstöðin í Bendigo við.. kvaddi nýja félaga sem lofa e-mailum [ætluðu svo að hringja þegar væri í Melbourne...en nei síminn minn er búinn að vera dauður í nokkrar vikur núna, hefði nú verið fínst að skella sér útá lífið með þeim, hehe]. Jájá. Ekki þurfti ég að bíða lengi eftir að sjá brosandi andlit hennar Carol sem kom og sótti mig ásamt fósturpabba sínum; Toby. Eyddum við restinni af deginum í að skoða myndir frá Safari ferðinni og töööluðum ég veit ekki hversu lengi ^^. Föstudagur. Við vöknuðum, hentum okkur í valdar flíkur, borðuðum, keyrðum að skólanum hennar... og þaðan uppí rútu með alþjóðlegum nemendum og af stað til Melbourne. Í Melbourne gerðum við ekkert rosa mikið... aðalega rölt um miðbæinn og svo var auðvitað kíkt inní einhverjar búðir. Ég og Carol fengum okkur reyndar ljómandi hádegismat á einhverju litlu kaffihúsi sem var falið einhverstaðar ^^ Eftir að hafa eytt deginum í göngu.. fórum við á strönd eina, sem var nú ekkert merkileg en við gátum þó aðeins slakað á áður en við myndum leggja aftur á stað heim.  Carol tínd og að fylgjast með tímanum [btw.. awesome hálsfesti, enda á ég það]  miss bollukinn að bíða eftir smoothie  krúsímús  komnar á ströndina. Þegar við komum heim... skoðuðum við fleiri myndir, hlustuðum á góða tónlist, töluðum, horfðum á dvd... sofnuðum. Sjáum nú til. Á laugardaginn fórum við í litla bæjarferð, komum við í uppáhalds búðinni minni í Oz; Mona Lisa, þar sem ég nældi mér í peysu á útsölu.. magnað. Við fórum svo í kaffihús, hittum eitthvað fólk, fórum svo í rölt í almenningsgarði [park] og svo fórum við heim til að hjálpa fjölskyldunni við 'eldamennsku' því búist var við nokkrum fjölskyldumeðlimum. Þegar fólkið bar að garði.. var slegið upp heljarinnar grillveislu, að hætti ástrala. Við átum öll yfir okkur.. fórum svo og horfum á footy leik á breiðtjaldi, hámuðum svo í okkur eftirréttina [mmmm] og svo horfðum ég og Carol á enn eina dvd myndina og svo svefn að vanda. Sunnudagsmorgun, og ég á leiðinni heim eftir góða helgi. Mest alla ferðina var ég nú að lesa mig til um hvalveiðar Íslendinga, en í skólanum hélt ég nú aldeilis flottan fyrirlestur um hvalveiðar, sem við eigum auðvitað að stiðja, enda nauðsynlegt í kringum Ísland [treystið mér ég er búin að lesa mér svo mikið um hvalveiðar að ég er pro]. Eitthvað annað á ég nú í pokahorninu, en meðal þess má nefna að... ... einn daginn þegar ég kom arkandi í skólann var ég ásamt öðrum snögglega stoppuð af kennurum og vinsamlegast vísað frá skólanum, jájá hafði ekki hugmynd um hvað væri á seiði, en komst nú fljótlega að þvi vandinn væri sprengjuhótun. Greinilegt að einhver nennti ekki í skólann þann daginn. En já eftir klukkutímabið með suð í eyrunum frá lögreglubílnum vorum við hleipt aftur inná skólalóðina og allt í góðu. ... ef ég hef ekki nefnt það áður, þá á veðrið hérna í ástralíu það til, að breytast með skyndilegum fyrirvara. Labbaði í skólann í þessu líka fínasta veðri, stuttu seinna var ég í verklegu matarprófi, og þá er alltíeinu kominn rykstormur [svona eins og þétt þoka.. bara sandur og mold], nú og svo þegar maður var nú búinn að henda einhverju inní ofn og að brasast við að stífþeyta eggjahvítur, þá verður allt rafmagnslaust [ég meina auðvitað] þanni að tímaplanið mitt í prófinu breittist mjög snögglega. Það hafði nefnilega eitthvað tré fallið í 'rokinu' á rafmagnslínu og allt varð rafmagnslaust. Var líka áhugavert að sjá öll stæðstu tréin í nágrenninu girðuð af og þú gast ekki komið nálægt þeim, vegna hættu á að þau myndu falla. Og svo var þetta nú bara venjulegur vindur og fólk að hvarta yfir því að þau fengu ekki að fara heim.. og kennara sem sögðu að maður ætti bara að halda sér heima á svona dögum.. og jájá, væri fínt að henda þeimí svona nett rok á íslandi ásamt hagléli. ... Amma og Afi [heyrnadaufi] frá Bendigo komu í dag í heimsókn. Eins og alltaf kemur afi alltaf með einhver "glaðning" handa mér [sem eru alltaf jafn skondnir] og núna gaf hann með lítinn bækling um áströlsku geim skrifstofuna. Alltaf jafn yndislegur. Hann ætlar að svo að gefa mér frímerkja safnið sitt.. eða part af því, og það er alveg meira en 100 ára gamalt o.O ætti kannski að taka uppá því áhugamáli.. þótt ég sjái nú ekki alveg ástæðuna fyrir því. Allavega, kallinn er harðákveðinn á þessu og mér þykir nú bara vænt um það. ... Á morgun kemur bekkur frá einhverjum arty skóla frá Queenslandi til Mildura, og tvær 15 ára stúlkur gista hérna á heimilnu í nokkra daga [auðvitað í herberginu mínu]. Það verður nú bara gaman. ... það er aðeins einn dagur eftir af skólanum og svo er ég komin í frí ^^ Er svo komin með ferðaplönin á hreint.. en þau koma bara seinna hingað inn. Allt búið í bili.. held að ég sé ekki að gleyma neinu stórkostlegu. Hendi hérna inn einni mynd af mér og Carol... svo bið að heilsa.  -Þórgunnur
»
08.09.2008 12:57:35 / thorgunnan
»
02.09.2008 11:54:12 / thorgunnan
Hvað ætli hún Þórgunnur hafi veriða að bralla seinustu dagana? Ja ætli ég gæti ekki tínt til eitthvað oggu fyrir ykkur elskurnar. Skólinn er nú bara samur við sig. Í ensku fer ég nú bráðlega að flytja ræðu um hvalveiðar á íslandi.. það verður nú áhugavert, ætli fólk fari ekki að gríta steinum í húsið mitt :'] alveg rosalega viðkvæmir yfir þessum hvalveiðum blessuðu skinnin. Í ljósmyndun vorum við að klára fyrsta stóra verkefnið okkar... og haldiði ekki að kellan hafi fengið A+, rosa ánægð =) Kápan [eða höfði: "Cape"] sem ég er að vinna að í textiles er á loka stiginu, þannig að ég ætla bara að hanna lítið vesti eða eitthvað svo að ég hafi eitthvað að gera. Hönnunamappan er þó aaaaaðeins á eftr áætlun, en hey, ég redda því. Jájá, ég er orðinn hörku kokkur í matnum og í kvikmynda dóteríinu erum við alltaf að læra eitthvað nýtt.. sem er vel áhugavert, skemmtilegir tímar. Nú svo hef ég nú að mestu leiti verið að grúska í tónlistarlífi bæjarinns. Eða já... ég fór semsagt á tónleika með bílskúrsböndum frá skólanum mínum. Rosa gaman, nokkrir ferlega góðir tónlistarmenn á ferð, það er allveg klappað og klárt. þessir eru í Media studies bekknum mínum.. tóku Time is running out - Muse.. awesome
ooog þessi kappi er í lífsleikni bekknum mínum, og í hljómsveitinni Rooster Booster ásamt góð kunningja mínum; Nick
Seinustu helgi fór ég svo og skipulagði skiptinema hitting ásamt Cecilie [Danmörk] og Belu [Þýskaland] sem heppnaðist líka bara svona vel. Fínt að gera svona, þar sem það eru komnir nokkrir nýjir skiptinemar og enginn þekkir neinn.. vil benda t.d á að ég hafði ekki hugmynd um að stelpa frá þýskalandi er í ljósmyndabekknum mínum... ooog situr við hliðina á mér, væri skiptinemi [daaaa Gunna]. Fórum 12 útað borða saman á Pizza café [sem er aðalplaceið, ábygglega sjöunda skiptið sem ég fer þagnað ef ekki oftar] Pöntuðum fimm stórar pizzur, kláruðum allt nema nokkrar sneiðar... seeem ég fékk að taka með mér, því köld pizza er besti morgunmatur sem fyrir finnst ^^ við örkuðum svo að kvikmyndahúsinu [bíó] og ég auðvitað með pizzukassann [sem við földum meistaralega vel í handtösku Belu] og fórum á Taken, sem er já alltílagi... frekar töff mynd og allt þannig, en endirinn er hræðilegur! Ég meina greyið stelpan ætti að fá sálfræði ráðgjöf og þannig pakki [æh þið sem hafið horft á myndina skiljið kannski] en ekki bara verða venjuleg aftur einn tveir og bingó =P þá varð þetta ekkert raunverulegt. Og já afsakið ef þið eruð ekki búin að sjá myndina, varð bara að koma þessu á framfæri. Mhm. Daginn eftir skiptinema hittinginn fór ég á geðveika tónlistarsamkomu, sem líkist svolítið musíktilraunum,.. nema bara miklu minni [samt undankeppni fyrir stóóóra keppni sem er haldin hér í Victoria] Freeza, minnig mig að það hét. Það var fimmklukkutíma prógram með öllum hljómsveitum á svæðinu sem skráðu sig, og svo var surprise hljómsveit í endanum. Ég fílaði mig alveg í tætlur, mikið af hæfileikaríku fólki hérna! Heyrðu já.. ég var svo beðin um að taka myndir fyrir kunningja mína í þungarokk hljómsveitinni Xiv [ www.myspace.com/xivband ]... og jújú ég er alltaf til í að taka myndir fyrir fólk.   Aha. Eftir fínustu 'tónleika' fór ég með hóp af fólki á KFC.. og þvílíkur viðbjóður... kemst ekki í líkingu við þetta heima.. ekki sama uppskrift á þessu krönsi sem umkringir kjúllan =P Sem minnir mig á það að dominos er heldur ekkert nærrum því eins. En já svo var bara rúntað eitthvað.. oog svo gisti Jess hjá mér, og svo já, letidagur daginn eftir og svo bara skóóólinn enn og aftur. Annað í fréttum er að - Ég er komin með einkaþjálfara í ræktinni, og ætla að drulla mér að reina koma mér í form, eftir að hafa tvöfaldast [hörmung].. nookkuð góð klúður saga á bakvið afhverju ég er með einkaþjáfara, en nenni bara ekki að rita hana niður. - Gisti hjá Andreu um daginn, sem var nokkuð gaman bara - Alltaf að kynnast nýju fólki - Horfði á handboltann í beinni hérna í Ástralíu.. alveg magnað! getum verið stolt af medalíunni okkar! [ákvað samt að tala ekki við frönsku vinkonu mína á næstununni  ] Alltaf á maður svo einhver ferðaplön en þau helstu eru þessi: - Ferð upp til fræga þjóðgarðinn Mango [hlakka rosa til að sjá allt þar!] - Awesome ferð til Bendigo að hitta krúttið mitt hana Carol [Finnland], þar sem við ætlum líka að fara til Melbourne og læti. - Spurning um að fara í 'djamm' ferð upp til Broken Hill með Cecilie og Belu, til að hitta allt liðið þar aftur. - Og svo stór ferð til Canberra, og eitthvað meira sem er ekki aaalveg planað, með fjölskyldunni ^^ Vá hvað ég elska að vera hérna og ferðast! Luuuv it Jájá gaman gaman... held að ég hafi náð alveg skikkanlegri lengd á ekkert svo áhugaverðu bloggi... vildi bara láta vita af mér. Hendi svo hérna í lokinn mynd af mér og Steph ^^ Þangað til næst.
»
25.08.2008 13:20:40 / thorgunnan
Jájá, ég viðurkenni fúslega að ég gleymdi þessari yndislegu bloggsíðu ^^ og ég hef ekki glóru hversvegna... kannski hefur bara verið svo mikið að gera í einhverju... heimalærdómi? ég bara veit það ekki, en allavega þá er ég komin aftur og tilbúin í að skrifa um snjóferðina mína [sem ég liggur við búin að gleyma -.- ] En hey ég skal muna eitthvað fyrir ykkur.
Eins og vanalega vöknuðum við eldsnemma, tróðum okkur inní jeppann og keyrðum af stað. Morgunmatur á Macdonalds [í Swan Hill] og svo keyyyrðum við og keyrðum meira þangað til við komum til Bright sem er lítill og fallegur bær undir "snjófjöllunum". [Ætli klukkan hafi ekki verið eitthvað um 2 leitið] Þar fékk ég líka svona ferlega almennileg snjóbomsur [sem fyrir stelpurnar eiga að geta nýst í nákomri framtíð] Svo fengum við 'hádegismat' í einhverju bakaríi... og það var nú ekki gott skal ég segja ykkur, allavega ekki ferskasta bakaríið í bænum [sá svo ekki til mikillar undrunar að bakaríið var til sölu]. Svo byrjaði um klukkutíma keyrsla upp fjallið.. alla leið á áfangastað:Hotham [ http://www.hotham.com.au/ ] Keyrslan upp var áhugaverð, það get ég sko sagt ykkur. Byrjað í sól og blíðu, og endað í snjó"bil". Já það var áhugavert og það sem er ennþá áhugaverðara [má maður skrifa þetta svona?] er það að tréin fella ekki lauf... og þaraf leiðandi eru tréin skartandi grænum laufum, það er að segja ef þú dustar mesta snjóinn af þeim. Þegar við komum að skálanum okkar, hentum við öllum ferðatöskum og öðru dóti inní herbergin okkar og svo var farið niður í setustofu til að heilsa uppá fólkið.. en þetta var auðvitað svona vinsamlegur skáli, eða þú ert ekkert inní herbergi, þú ert niðri í setustofu spjallandi við fólkið, svo er sameiginlegt eldhús og þvottahús og já.. rosalega sameiginlegur skáli bara =P
 verið að bera töskur og poka inn [og þetta er í alvöru snjór]
Restin á deginum fór í að leigja skíði.. snjóbretti í mínu tilfelli, og svo elduðum við ábyggilega eitthvað rosa gott, og svo var skriðið uppí Kooojuna sína.. hafði ekki hugmynd um hvað morgundagurinn myndi bera í skauti sér. Og ekki þrufti ég að bíða lengi. Eftir að hafa rifið sig upp um sjö leitið, hámað í sig egg, beikon, sveppi og öllu viðheyrandi, dreif ég mig út í snjóinn í smá stund og svo fór ég í kennslustund.. seeeem var frekar áhugaverð, jájá sveimér þá, ég datt oft.. og svo datt ég meira, svo náði maður einhverju.. svo datt maður. Oh jæja, eftir klukkutíma í tilganglausri kennslu fór ég með snjóstrætónum í happy skálann þar sem ég fékk mér ábyggilega ljómandi hádegismat. Eftir ágætis hvíld, ákvað ég að henda mér [bókstaflega] niður einhverjar "krakka" brekkur... og vááá hvað ég var ofur góð *kaldhæðni* þar sem ég hafði enga stjórn á brettinu.. skautaði bara niður, hennti ég mér ofur reglulega niður svo ég myndi ekki tækla alla brekkuna niður :'] og haha ég var svo fáránlega pirruð, muldrandi ósæmileg orð yfir heimsku minni í að hafa byrjað á þessari vittleysu, og hugsaði meira segja að gefast upp. En jájá fór eina ferð í viðbót [alveg jafn slæm þó] og fór svo útí skála, jafnaði mig aðeins yfir góðum kaffisopa og heimabökuðum smákökum, og svo brosti maður útað eyrum og hló yfir viðburðum dagsins.. og auðvitað jákvæðnin í botni fyrir morgundeginum.
Morgundagurinn fór í að læra að fara róóóóólega niður brekkurnar og ná einhverri stjórn á brettinu. Tókst það líka bara askoti vel, að minnsta kosti komst maður naumlega framhjá skíðafólkinu án þess að valda stór slysi.
Dagur þrjú. Ég fór enn og aftur í einhverja kennslustund, og byrjaði að læra "snúninga" eða hvernig á að stýra brettinu og ég veit ekki hvað og hvað... ég náði nú aldeilis ekki öllu, eins og sjá má á mínu frábæra myndbandi hér fyrir neðan :']
Hahahaha vá hvað ég er ofur góð og hvítu "rasspúðarnir" eru ennþa betri :'] en já dagurinn eftir þetta... Ég gat ekki hreyft legg né lið án þess að kveljast! ég hef aldrei á ævi minni verið með jafn mikklar harðsperrur... ALDREI. Þetta var pain! það get ég sagt ykkur... og mikið óskaplega hló ég mikið af mér. Ég er nefnilega ekkert bara að tala um í löppum og höndum... þetta var í lófanum, fingrum, hálsi, baki... sérstaklega maganaum [rosalega sárt þegar maður þarf að hlægja] og já nefniði það... og svo var júju ýmislegt fleira sárt eftir að hafa dottið þó nokkuð oft ^^ ehe. Fór samt út til að reyna að æfa mig eitthvað. Fór svo í centro-ið þarna uppi og fékk mér heitt kakó og ákvað svo að fara að skoða búðirnar. Fann nú aðal búðina á svæðinu.. full af rosa flottum snjóvörum og fleiru dúlleríi... og haldiði barasta ekki að Björk hafi ekki verið í botni og svo blasti við þarna Nikita vörur! maður var bara kominn heim; Snjór, hreint og kalt vatn úr krananum og svo þetta.. gaman gaman.
Á fimmta deginum kom þetta nú næstum því... náði léttilega að renna mér niður brekkur og svo kynntist ég honum Alex, sem hálpaði mér heaps! það var awesome.
Seinasti dagurinn.. og ég var brunandi niður bláu brekkurnar [skiptist niður í liti; grænt er fyrir "byrjendur", blátt fyrir lengra komna, og svart fyrir pro (tvöfalt svart fyrir klikkhausa)] fór meira að segja niður blá/svarta brekkur ^^ hmmmm hver er góð núna? [vil samt taka fram að ég fór í sloooow motion niður og gerði engin trikk, en hey, ég komst niður ]
Já þanni var nú það.. ég get næstum sagt að ég kunni á snjóbretti... og ég þurfti að fara alla leið til ástralíu til að læra það :'] er það ekki nokkuð gott. Eftir að hafa kvatt snjóinn með erfiðis munum, fórum við og heimsóttum mömmu og pabba Selwyns sem ég hafði áður hitt í Etuca. Ég veit að ég hefði alveg getað skrifað eitthvað meira, en ég er bara svo gleymin, og er svo þreytt þessa stundina, og vil helst klára þetta af svo ég komist í háttin ^A^ Heyriði þessi ferð var æðisleg! algjörlega! og já Þangað til næst...
-Þórgunnur Þórsdóttir
»
15.08.2008 10:42:41 / thorgunnan
Áttaði mig á því að ég hef greinilega ekki haft tíma til að blogga um afmælið mitt og sitthvað fleira sem gerst hefur áður en ég fór í ástralska snjóinn, þannig að ég ætla að redda því núna með stuttu bloggi [aðalega gert svo að ég muni eitthvað seinnameir], áður en ég fer í að skirfa eitthvað um skíðaferðina. Afmælisdagurinn minn var ósköp fínn, þrátt fyrir leiðindar veikindi [væntanlega vegna kuldans í tjöldum safari ferðarinna]. Ég byrjaði daginn með mikilli eftirvæntingu við að opna pakka sem hafði borist frá klakanum... og vá ég var svoo glöð þegar ég komst að innihaldi pakkans! Ég fékk íslenkst sælgæti [jamminamm]. Sigur Rós Deluxe Edition!!!! [bestast í heimi], Næturvaktina, Eyrnalokka og ofur krúttlegt bréf ásamt mynd af fjölskyldunni [sérstaklega frá Bjarneyju Önnu] frá fjölskyldunni minni! En ásamt þessu fékk ég "Safari ferðina" sem var draumur. Nú svo fékk ég líka rosalega fallega hálsfesti [lava pearl] frá Ömmu, Afa, Röggu, Einari og Sigjóni Atla. Takk æðislega!  Nú frá áströlsku fjöldkyldunni, fékk ég eins og annað blogg gefur til kynna, rosa flotta 'peysu bol", frekar spes, og ég elska hana. Svo fékk ég líka skjal um það að ég fer að borða á flottasta [og væntanlega besta] veitingastaðnum í bænum.. en þangað fer ég við gott tækifæri! get varla beðið! Um kvöldmatarleitið komu Rob og Anette, í heimsókn og borðuðu með okkur. Ég sá um forréttinn, Liz eldaði rosa góðan mat.. og svo fékk ég köku =D jeiiii.  Daginn eftir héldum við svo litla afmælisveislu ásamt lítilli kveðjuveislu fyrir hana Rebeccu... en því miður er hún farin heim til Bandaríkjanna. Sakna hennar! Þar bættust nú við gjafir... og já ætla bara snöggvast að telja upp gjafir sem mér bárust á þessu kvöldi ásamt nokkrum frá skólanum. Rebecca og fjölskylda hennar gáfu mér rúmteppi og koddaver með áströlsku þema; saumað af Bec.. það er ofurflott... skal setja mynd hérna seinna meir. Ég fékk svartan 'loð' kodda frá fjölskyldu bróður Liz, Gigantour 2 DVD frá Troy, Spongebob bangsa frá Josh, Inneign í Jayjays frá Andrey og pínu pening frá aðstoðarfjölskyldunni minni. Jájá gaman gaman.. einu vandræðin eru að manni er farinn að kvíða yfir því hvort að allur farangur komist heim á klakann =P við að borða kökusneiðina okkar
Daginn fyrir heimferð Rebeccu, fórum við í litla myndatöku, en ég tók myndir sem hún ætlar að nota fyrir skólann sinn [senior pictures, sem fara í bók], þannig að það var bara gaman.. svo fórum við með fjölskyldu hennar í litla bátsferð. Klukkan 5 að morgni til vaknaði ég svo til að fara útá flugvöll til að kveðja skvísuna mína. Það var nokkuð erfitt, en ég lofaði henni heimsókn.. og þá er bara að standa við orð sín, spurning hvort að maður taki road trip um Bandaríkin einhvertímann, hmmm. á leiðinni í langa flugið heim... seinasta pós
Æj já... ekkert ofur spennandi blogg.. ein hey, Snjóbrettabloggið mitt verður næst =P vonandi næ ég að rifja eitthvað skikkanlegt upp. Þórgunnur snjóbrettakappi kveður að sinni.
»
10.08.2008 06:18:00 / thorgunnan
Þá er maður nú kominn niður úr snjónum. Æðisleg ferð! en ekki er þetta blogg tileinkað þeirri ferð... það er nefnilega komð að loka blogginu frá Safari ferðinni miklu. Dagur 14 - 12.júlíLeiðin lá beinustu leið í 'outbackið' á Ástrsalíu, eða í auðnina, en þar eyddum við næstu dögum ferðarinnar. Lanslagið þar er svo fallegt! endalaus auðn, litirnir fallegir, einstaka tré, hrafnar útum allt og svo allir þessir ernir [sá einu sinni fjóra saman taka sig á loft.. það var einstaklega falleg sjón, og ætla ég aldrei að fyrirgefa mér að myndavélin var ekki uppi]. Við stoppuðum til að sjá frægasta Dingo [viltir úlfahundar] í heimi, en það var söngfuglinn hann Dinky. Það var nú show útaf fyrir sig. Ef einhver byrjar að glamra á píanóið sem var á staðnum.. hoppar úlfhundurinn uppá píanóið og byrjar að góla með, nokkuð áhugavert já. Svo hoppuðum við uppí rútu... og keyrðum og keyrðum og keyrðum, horfðum á Priscilla Queen of the Desert [fínasta mynd alveg], þegar við komum svo loksins að tjaldstæði kvöldsins í Kings Creek, henti ég tjaldinu upp og sofnaði þar í ábyggilea klukkutíma. Kvöldið var svo semmtilegasti partur dagsins, en við stelpurnar skiptum strákunum á milli okkar, og svo voru þeir klæddir, puntaðir og teknir í kennslu, og alltí einu stóðu um 10 dragdrottningar tilbúnar í slaginn. Vá hvað það tók á hláturtaugarnar að horfa á þá gera listir sýnar, og þvílík trikk sem voru notuð á dómara kvöldsins. Eftir já góða skemmtun voru úrslitin tilkynnt og auðvitað var Hörður okkar í fyrsta sæti [go ísland] Minnir svo að Hannes [svíþjóð] hafi verið í öðru og svo Nick [USA] í því þriðja. [Mæli stórlega með myndum þegar ég hendi þeim inn]   Dagur 15 - 13.júlíÞessi dagur var æðislegur! Reindar full mikið púl... en myndavélin elskaði daginn. Við vöknuðum snemma, pökkuðum og fórum svo í göngutúr upp King Canyon. Það er án efa flottasti staður sem ég hef séð hérna í Oz, algjör náttúruperla. Í allri þessari auðn, rís upp þessi "fjallgarður" sem hefur meðal annars regnskóg. Gangan byrjaði á því að klífa fjall sem bar heitið 'Hjartaáfall'...nafnið segir allt sem segja þarf, en þegar upp var þetta ekkert mál og maður gat notið fegurðinnar. Eftir gönguna, þegar maður var kominn að rútunni aftur, og andardráttur kominn í lag, héldum við af stað til Uluru! og við keyrðum og keyrðum og svo keyrðum við meira, alveg þangað til við sáum glitta í stóra tannburstann [klettur sem lítur út fyrir að vera Uluru í fjarska... og svo sjálfann klettinn [mikilfenglegur er hann] Við gerðum okkur klár á tjaldstæði staðsins, fórum í lítinn verslunarleiðangur í nálægum búðum, nutum útsýnisins og svo fórum við á stað til að sjá sólsetrið yfir Uluru. Það var magnað!  Dagur 16 - 14.júlí
Kuldi. Djöfulsins kuldi. Ég hef aldrei á ævinni vaknað í jafn miklum kulda. Það vill nefnilega þannig til að við erum í eyðimörk. Eyðimörk + vetur + nótt = Frost. Og ég í tjaldi með bilaðann svefnpoka, og teppið mitt einhverstaðar í láni. Nú jæja stór pönnuköku skammtur, heit sturta og te, bjargaði morgninum og svo skánaði það um leið og við brunuðum af stað að Uluru, sólin fór að skína og manni varð heitt. Þegar á áfangaðstað var komið fengum við þær fregnir, flestum til mikillar gremju, að ekki væri hægt að klirfa Uluru í dag vegna vinds. Ojæja, við tókum okkur þá bara til og löbbuðum hringinn í kringum klettinn. Og þvílík og önnur eins stærð!! Póstkort gefa ranghugmyndir... þar sjáiði bara framhliðina... hann lítur svona út:  og að ganga hringinn tekur 3 til 4 klukkutíma. Á nokkrum stöðum geturu lesið þig í gegnum sögu klettsins.. en hún er vel áhugaverð alltof flókið til að útskýra og ég man varla neitt... en þetta er víst samkvæmt sögunni einhverskina "skrímsli" sem breyttist í klett. Frumbyggjar líka ekki Uluru, og að klífa kelttinn, á að boða mikla ógæfu. Eftir frábæra göngu sem gladdi augað, fórum við á svipaðan stað í annan göngutúr [en klettarnir þar eru líktir við höfuðið og gulu vinunum okkar í simpson's] Það var mögnuð sjón, en ég er nú viss um að ég hefði notið þess betur að fara þangað ef ég hefði ekki verið ný komin úr annarri langri göngu, og þar að auki dauð þreytt. Frábær dagur. Dagur 17 - 15.júlíNokkuð ómerkilegur dagur, en alls ekki slæmur. Rútan var efst á dagskrá og var það næstu daga. Landslagið ennþá eins [en það er samt flott], en breyttist þá örlítið þegar við nær fór að draga að Coober Pedy, stórt námusvæði.. en þar eru holur og litlir [ásamt mjög stórum] sandhólum, gjörsamlega útum allt! Bærinn er svo áhugaverður.. og þegar ég segi áhugaverður þá meina ég áhugaverður. Hann er svo langt í frá að vinna fegurðarsamkeppni bæja í Ástralíu, en hvort sem þið trúið því eða ekki þá býr um 90% bæjarbúa undirjarðar. Rosalega hlátursöm stelpa hoppaði uppí rútu til okkar, og tók okkur í leiðsögutúr um bæinn. Svo fórum við í Opal safn [en bærinn er frægur fyrir Opalinn sem hann 'grefur' upp. Við sváfum öll í einhverju neðanjarðar holi sem var eintaklega þægilegt og rosalega hlítt miðað við tjöldin okkar. Dagur 18 - 16.júlí
Rosalega gott að vakna í hlíunni.. en mikið óskaplega magnast hrotur upp undijarðar!! ætlaði aldrei að geta sofnað. Viiiið fórum svo í rútuna frægu... keeeeeeyrðum, landslagið breittist í græna akra, holt og hæðir... og svo enduðum við í fangelsi... þar sem við sváfum. Við skoðuðum okkur vel um í þessu gamla fanglesi og hlustuðum á sögur frá gamla fangaverðinum. Það var alveg ótrúlega gaman og órúlegt en satt þá sakna ég þess að vera þarna. Við í "drauga" skoðun, og svo lékum við okkur við brennuna.   Heyrðu já, til gamans má geta að kengúra ein var þarna á svæðinu [ekta túrista] og hún verður víst kvikmyndastjarna bráðlega. Gaman að því. Dagur 19 - 17.júlíSeinasti dagurinn rann upp.. og ég raddlaus. Eftir morgunmat, hoppaði ég alvön uppí rútu og svo af stað... á leiðinni heim til Mildura. Í rútunni fékk ég afmæliskort, sem var ofur krúttlegt, og svo fékk ég afmælissöng með Matthias-i [18 ára afmælisbarninu] þrátt fyrir að ég ætti ekki afmæli fyrr en daginn eftir. Um hádegismataleitið blasti Mildura við og svo hlaut að koma af erfiðri kveðjustund. Eftir að hafa gefið öllum stórt knús og fengið rosalegar 'kveðjuóskir' vorum ég og Rebecca skilin eftir á grasreitnum á sjöundastræti nálægt Grand Hotelinu, og þar stóðum við og veifuðum rútunni þangað til hún hvarf. 'Mamma' Bec kom svo að sækja okkur, en heima hjá henni beið ég til klukkan 5, eða þá kom Liz og sótti mig.  ÆÐISLEG ferð! Frábærir krakkar sem ég sakna feitast! og já besta afmælisgjöf hingað til (: Jeii... ég náði að klára að blogga um ferðina, sko mína. Tekur mig samt ábyggilega allan þennan mánuð til að setja myndirnar inn. Sakn á ykkur öll. xÞórgunnur.
»
Síður: 1 2 3
|
.ég.
 nafn; þórgunnur þórsdóttir aldur; 17 ára atvinna; Skiptinemi í ástralíu
heimilsfang; 179 Cureton Ave 3550 Mildura VIC Australia sími; 0458288295 netfang; thorgunnan@hotmail.com
.athugist.
...vinsamlega athugið að ekki er tekin nein ábyrgð á stafsetningavillum
Talning
Fyrir 1166 dögum
.. kem ég heim í kreppuna
|